B. Fræðsla og forvarnir |
Lýsing á aðgerð
Unnið verði fræðsluefni fyrir lögreglu um hinsegin málefni með það fyrir augum að tryggja betri þekkingu innan lögreglunnar á málaflokknum.
Markmið aðgerðarinnar verði að fræðsluefni um hinsegin fólk, málefni og stöðu þess verði komið með skipulegum hætti til lögregluembætta landsins.
Tímaáætlun: 2023–2024.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samvinnu við ríkislögreglustjóra.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 10.3, 16.3, 16.6 og 16.10.
Staða í apríl 2024: Fjögur námskeið um hinsegin og kynsegin málefni voru haldin á vorönn 2023 í MSL í sí- og endurmenntun fyrir starfsfólk lögreglu. Fræðslan er komin inn í kennsluáætlun í lengra námi í rannsóknum sakamála og í stjórnun vakta í almennri löggæslu.
Haldið hefur verið námskeið um hatursglæpi í samstarfi við ÖSE. Unnið er að fræðslumyndböndum um hinsegin málefni í samstafi við Samtökin 78 - verða tilbúin haust 2024.
Ábyrgð
Dómsmálaráðuneytið
Komið vel á veg