Starfshópur um þjónustu talmeinafræðinga
Í maí 2021 skilaði starfshópur á vegum þriggja ráðuneyta greinargerð um þjónustu talmeinafræðinga við börn. Áhersla greinargerðarinnar var á snemmtæka íhlutun hjá börnum með vægar mál- og talþroskaraskanir. Í mars sl. skiluðu Félag talmeinafræðinga á Íslandi (FTÍ) og Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) umsögnum um skýrsluna.
Ráðherra undirritaði í framhaldi minnisblað þess efnis að settur verði á fót starfshópur sem hefur það hlutverk að:
· Kortleggja þá þjónustu sem er veitt innan sveitarfélaga annars vegar og hjá ríki hins vegar
· Þarfagreina þjónustu innan sveitarfélaganna
· Setja upp skýran þjónustuferil með áherslu á samþættingu þjónustu og samstarf milli kerfa.
· Skilgreina grunnþjónustu og hver á að veita hana.
· Endurskoða rammasamning, m.a. hvort afnema eigi tilvísanakerfið
Óskað var eftir tilnefningum í hópinn frá mennta- og barnamálaráðuneyti, Félagi talmeinafræðinga á Íslandi, Málefli, embætti landlæknis, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Sjúkratryggingum Íslands.
Starfshópinn skipa
- Selma Margrét Reynisdóttir, án tilnefningar, formaður
- Óskar Haukur Níelsson, tilnefndur af mennta- og barnamálaráðuneyti
- Íris Dögg Rúnarsdóttir, tilnefnd af Félagi talmeinafræðinga á Íslandi
- Rannveig Rós Ólafsdóttir, tilnefnd af Félagi talmeinafræðinga á Íslandi
- Þórhalla Jónsdóttir, tilnefnd af Málefli
- Hrefna Þengilsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
- Svandís Ingimundardóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Guðlaug Björnsdóttir, tilnefnd af Sjúkratryggingum Íslands
Starfsmaður hópsins er Hrafnhildur Ýr Erlendsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
Starfshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 17. maí 2023 og er gert er ráð fyrir því að hópurinn skili niðurstöðum til ráðherra fyrir 1. nóvember 2023.