Undirbúningshópur um stofnun EMT sveitar
Hlutverk undirbúningshópsins er að undirbúa stofnun EMT viðbragðssveitar á Íslandi.
Hópnum er falið að gera verkefnisáætlun og kostnaðaráætlun og að meta möguleika á styrkumsóknum frá Evrópusambandinu og Evrópuráðinu. Gert er ráð fyrir að hópurinn hafi samráð við Landsbjörg, heilbrigðisstofnanir, Rauða kross Íslands og aðra aðila eftir þörfum.
Undirbúningshópinn skipa
- Jón Magnús Kristjánsson, án tilnefningar, formaður
- Tryggvi Hjörtur Oddsson, tilnefndur af sóttvarnasviði embættis landlæknis
- Atli Viðar Thorstensen, tilnefndur af forsætisráðuneyti
- Áslaug Karen Jóhannsdóttir, tilnefnd af utanríkisráðuneyti
- Guðrún Lísbet Níelsdóttir, tilnefnd af Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
- María Sæm Bjarkardóttir, án tilnefningar og er jafnframt starfsmaður hópsins
Undirbúningshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 18. mars 2024 og skal skila ráðherra niðurstöðum sínum eigi síðar en 31. október 2024.