Verkefnahópur um mönnunarviðmið í hjúkrun
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lagt áherslu á opinbera stefnumótun í mönnun heilbrigðisstétta og að gera mönnunaráætlun til framtíðar. Til að hægt verði að gera raunhæfa mönnunaráætlun til framtíðar á Íslandi verður að hafa viðmið um mönnun sem eru endurmetin reglulega. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur einnig lagt mikla áherslu á mönnunarviðmið í hjúkrun til að tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga.
Mönnunarviðmið í hjúkrun hafa verið innleidd í nokkrum löndum meðal annars Englandi, Wales, Skotlandi og Ástralíu svo dæmi sé tekið. Mikilvægt er að nýta þessar fyrirmyndir í virku samstarfi við þarlenda aðila.
Vinna verkefnahópsins skal taka mið af Heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Verkefnahópnum er ætlað að leggja fram mönnunarviðmið í hjúkrun á legudeildum Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítala. Áætlað er að kynna niðurstöðurnar fyrir helstu haghöfum eigi síðar en 1. apríl 2024.
Vinnuhópinn skipa
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, sérfræðingur, án tilnefningar, formaður
- Magnús Benedikt Sigurðsson, gagnafræðingur, án tilnefningar
- Hulda Ringsted, framkvæmdastjóri hjúkunar, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri, aðalmaður
- Erla Björnsdóttir, mannauðsstjóri, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri, varamaður
- Elín Jóhanna G. Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og hagfræðingur, tilnefnd af Landspítala, aðalmaður
- Ólafur Guðbjörn Skúlason, framkvæmdastjóri hjúkunar, tilnefndur af Landspítala, varamaður
Tengiliðir frá Félagi íslenskra hjúkruarfræðinga
- Guðbjörg Pálsdóttir formaður FÍH, aðalmaður
- Helga Rósa Másdóttir, sviðsstjóri fagsviðs FÍH, varamaður