Verkefni
Ríkisstjórnin mun leggja sitt af mörkum til að stuðla að umhverfi lágra vaxta, hóflegrar verðbólgu og góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins til stuðla að nauðsynlegu samspili þessara þátta.
Ráðuneyti
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðKafli
Efnahagur og ríkisfjármál
Framvinda
Fjármálastefna og fjármálaáætlun samþykkt í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar. Skuldahlutfall ríkissjóðs er orðið stöðugt og í námunda við fjármálareglur laga um opinber fjármál. Stjórnvöld kynntu aðgerðir gegn verðbólgu í júní, sem fólu m.a. í sér 17 ma.kr. aðhaldsaðgerðir, s.s. hámark á launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins, en einnig að fjármálareglur tækju gildi ári fyrr en áður var gert ráð fyrir.Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni